Luxury Ellman FM - Heilsurúm 268.100kr.433.200kr.
Aftur í vörulista
Luxury Harlan CFM - Heilsurúm 340.900kr.508.200kr.

Luxury Crosby Plush – Heilsurúm

281.900kr.447.200kr.

Crosby Plush er stórkostleg heilsudýna úr Luxury línunni frá King Koil. Crosby Plush er eins og nafnið gefur til millimjúk pokagormadýna sem skartar fimm svæða gormakerfi og þykku þægindalagi.

Amerískar pokagormadýnur hafa ávallt verið fremstar í flokki. Þær fjaðra og dempa vel, auðvelda hreyfingu á næturna og veita afbragðs öndun.

Crosby Plush er mýkri útgáfan af Ellman Firm sem má skoða hér.

King Koil – Made in USA since 1898

Vörumerki

VNR: luxury-crosby-plush-heilsurum

Luxury Crosby Plush er fyrsta flokks millimjúk heilsudýna með fimmsvæðaskiptu pokagormakerfi sem veitir fullkominn stuðning á réttum stöðum til að mynda undir mjóbaki og öxlum.

Reinforced Edge Perimeter pokagormakerfið í Luxury línunni er einnig með sérstaklega styrkta kanta sem stækkar svefnflötinn og tryggir að auðvelt sé að rísa úr rekkju.

Dýnuverið sjálft er sérstök hönnun King Koil, en það er úr örverueyðandi Safeguard áklæði og inniheldur AdvantaGel™ gelblandaðan svamp sem eykur kælingu og stuðlar að bættri öndun dýnunnar.

Stífleiki

Luxury Crosby Plush heilsudýnan er millimjúk.

Dýnuver

Dýnuverið utan um Luxury Crosby Plush heilsudýnuna er þríþætt:

  • Dýnuverið sjálft er úr Safeguard áklæði, en það er spunnið úr örverueyðandi trefjum sem koma í veg fyrir að rykmaurar og aðrar örverur fái að njóta sín í draumadýnunni þinni.
  • Á milli laga í dýnuverinu er síðan AdvantaGel™, háþróaður gelblandaður svampur, sem hjálpar til við að hitastýra svefnfletinum og auka öndun dýnunnar.
  • Neðsta lagið í dýnuverinu er síðan Comfort svampur sem veitir aukna yfirborðsmýkt.
Þægindalag
  • 1cm Lumbar Gel Infused Memory Foam

Crosby Plush útgáfan er með sérstakt lag af gelblönduðum þrýstijöfnunarsvampi undir mjóhryggsvæðinu til að fækka álagspunktum og veita aukinn stuðning undir mjóhrygginn.

  • 2,5cm Plush Comfort svampur

Comfort Plush svampurinn er milliþéttur og mjúkur kaldsvampur sem tekur vel á móti og heldur við lögun líkamans.

Þessi samsetning hentar oft mjög vel þeim sem kjósa að sofa á hliðinni.

Stuðningur
  • 20cm Reinforced Edge Perimeter pokagormakerfi

Reinforced Edge Perimeter pokagormakerfið er fimmsvæðaskipt sem þýðir að það veitir góðan stuðning undir mjóbakið en gefur eftir undir axlasvæðinu.

Pokagormakerfi eru hönnuð til þess að minnka hreyfingu milli svefnsvæða, aðlaga sig að líkamanum og fækka álagspunktum, en ásamt þessu er Reinforced Edge Perimeter gormakerfið einnig með sérstaklega styrktum kanti sem stækkar svefnflötinn og auðveldar þér að standa upp úr dýnunni.

Rúmbotn

Við sérsmíðum okkar eigin rúmbotna sem eru einstaklega sterkir viðarbotnar samsettir úr MDF og furu.

Við bólstrum einnig rúmbotnana og er hægt að velja mismunandi liti og áklæði.

Afhendingartími

Luxury Crosby Plush er lagervara og er hægt að fá afgreidda alla virka daga milli 08:00 og 16:00 svo framarlega sem birgðir séu til.

Lystadún-Snæland og Vogue rúmbotnar eru framleiddir eftir pöntunum. Afhendingartími er því 7 - 10 virkir dagar.

Framleiðsluland

Luxury Crosby Plush er framleidd af King Koil, en þau hafa framleitt dýnur á sama stað í Connecticut fylki í Bandaríkjunum síðan 1898.

Allar Lystadún-Snæland og Vogue dýnur, rúmbotnar og höfðagaflar eru handgerð íslensk framleiðsla. Áratuga reynsla og gæði. 

Ábyrgð

10 ára hlutfallsleg framleiðsluábyrgð er á öllum King Koil dýnum.

Vottanir

Vogue notar einungis hráefni vottuð með Oeko-Tex Standard 100  umhverfisvottuninni við framleiðslu á öllum sínum heilsudýnum, rúmbotnum og höfðagöflum. Það þýðir að neytendur geta gengið að því vissu að Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotnar og höfðagaflar eru úr hráefnum sem eru laus við hættuleg eða skaðleg efni sem voru unnin með lágmörkun á umhverfisáhrifum að leiðarljósi.

Allur svampur sem Vogue notar í Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotna og höfðagafla er fenginn frá stærsta svampframleiðanda í heimi, Carpenter Co. Allur sá svampur er vottaður með Oeko-Tex Standard 100.

Ekki gleyma rúmgaflinum