HAFDÍS 20 - Heilsudýna 110.240kr.259.200kr.
Aftur í vörulista
Rúmbotn (Campos - 9 litir) 44.160kr.99.800kr.

LAYLA – Heilsudýna

63.840kr.134.640kr.

Royal Layla býður upp á einstaka mýkt án þess að fórna nauðsynlegum stuðningi sem tryggir þér fullkominn nætursvefn.

Heilsudýnan Layla Plush er fullkomin fyrir þá sem vilja orlítið meiri mýkt. Layla hefur verið afar vinsæl í unglinga og gestaherbergin.

Layla er millistíf heilsudýna með vönduðu fimm svæða pokagormakerfi, þykku þægindalagi úr þrýstijöfnunarsvampi og vatteruðu dýnuveri.

Vörumerki

Vörutegund

Heilsudýnur

VNR: layla-heilsudyna

Royal Layla er vönduð millistíf heilsudýna með fimmsvæðaskiptu pokagormakerfi sem styður sérstaklega vel við mjóbakið.

Að auki er Layla með þykku þægindalagi úr þrýstijöfnunarsvampi sem léttir álagið á helstu álagssvæðum líkamans eins og mjöðmum og öxlum. Dýnan dreifir líkamsþunganum sérstaklega vel ásamt því að auðvelt er að hreyfa sig í dýnunni.

Stífleiki

Royal Layla er millistíf.

Dýnuver

Dýnuverið utan um Layla er saumað úr sterku og teygjanlegu pólýester sem að tryggir góða endingu. Dýnuverið er sömuleiðis vatterað sem að eykur yfirborðsþægindi dýnunar og bætir kælingu. Þar að auki er þykkt lag af þrýstijöfnunarsvampi og kaldsvampi inni í dýnuverinu fyrir aukin þægindi.

Stuðningur og þægindi

Layla heilsudýnan er með sérstaklega þykkt þægindalag til þess að hafa yfirborðsmýktina sem allra besta.

  • Þægindalagið byrjar í dýnuverinu sem er samsett úr 2cm þykkum þrýstijöfnunarsvampi, og svo 3,8cm mjúkum kaldsvampi.
  • Næsta lag samanstendur svo af þremur lögum af kaldsvampi, samtals 5,5cm, hvert lag með sinn stífleika.

Layla heilsudýnan er með fimmsvæðaskipt pokagormakerfi. Samtals eru 840 gormar, hver um sig 22cm á lengd sem gefur dýnunni virkilega góða fjöðrun.

  • Hver gormur er sérinnpakkaður í nylon poka, sem eru svo límdir saman á þremur punktum. Þetta gerir gormakerfið mun sterkara, og gerir það að verkum að það lagar sig að líkamanum og tryggir að hreyfing milli svefnsvæða verður lítil sem engin.

  • Pokagormakerfið er fimm svæða skipt til að tryggja að líkaminn fái réttan stuðning og til að létta á helstu álagspunktum líkamans (axlir og bak).

Kantar

Kantarnir á dýnunni eru sérstaklega styrktir. Það stækkar svefnflötinn og auðveldar fólki að standa upp úr rúminu.

Afhendingartími

Royal Layla heilsudýnan er lagervara og er hægt að fá afgreidda alla virka daga milli 08:00 og 16:00 svo framarlega sem birgðir séu til.

Framleiðsluland

Layla er framleidd í Kína.

Ábyrgð

5 ára framleiðsluábyrgð er á öllum Royal dýnum.