ERGOPURE 40 - Einbreitt rafmagnsrúm (80 - 140cm) 239.840kr.454.860kr.
Aftur í vörulista
LAYLA - Einbreitt Heilsurúm (90 - 140cm) 108.800kr.182.440kr.

HAFDÍS 20 – Heilsudýna

110.240kr.259.200kr.

Hafdís 20 er heimsklassa heilsudýna úr smiðju Lystadún Snæland og Vogue. Hafdís er fimmsvæðaskipt latexdýna unnin úr hágæða latexblöndu

Latexdýnur henta mjög vel þeim sem vilja mikinn stuðning og aðlögun við líkamann, góða dempun og/eða fólk með ofnæmi.

Íslensk hönnun – Íslensk framleiðsla.

Vörumerki

Vörutegund

Heilsudýnur

VNR: hafdis20-heilsudyna

Hér er á ferðinni fyrsta flokks heilsudýna úr smiðju Lystadún-Snæland og Vogue.

Lystadún-Snæland heilsudýnur hafa verið framleiddar á Íslandi í rúm 70 ár. Við leggjum mikla áherslu á að vinna einungis úr fyrsta flokks hráefni og notum því einungis umhverfisvottaðan svamp í heilsudýnurnar okkar.

Stífleiki

Hægt er að velja um mjúka eða millistífa dýnu.

Einnig er hægt að velja mjúk/stíf og þá gerum við dýnuna þannig að annar helmingur dýnunnar er mjúkur og hinn stífur. Þannig fá báðir aðilar sitt draumarúm ef um par er að ræða !

Dýnuver

Innofa™ dýnuverið er gert úr sterku og teygjanlegu pólýester sem að tryggir góða endingu. Dýnuverið er sömuleiðis vatterað sem að eykur yfirborðsþægindi dýnunar og bætir kælingu.

Innofa™ dýnuverið má þvo á 30°C.

Stuðningur og þægindi

Í Hafdís 20 er fimm svæða 20cm þykkur latex kjarni úr vandaðri latexblöndu frá Artilat í Hollandi. Hægt er að hafa latex kjarnann mjúkan eða millistífan.

Latex kjarninn er fimmsvæðaskiptur, sem þýðir það að hann gefur betur eftir undir öxlum og herðum á sama tíma og hann styður þétt undir mjóbakið.

Að auki er latex kjarninn með steyptum loftrásum sem veita frábæra öndun og bæta loftflæðið.

Meira um Latex
Burðarkjarninn í Hafdísi er hágæða latexblanda frá Artilat í Hollandi.

Latexblandan samanstendur af 70% latexlíki (unnið úr hráolíu) og 30% náttúrulatex (unnið úr gúmmitrjákvoðu, einnig þekkt sem latexmjólk). Latexlíki er ein af mörgum tegundum gúmmís sem unnið eru úr hráolíu og býr yfir þúsundum notagilda. Eitt og sér hinsvegar þykir það frekar stíft og ekkert sérlega gott í dýnugerð, en þegar því er blandað við náttúrulatex er hægt að ná fram mun meiri mýkt, teygju og öndun.
Þessi latexblanda þykir því alveg sérstaklega góð í dýnugerð, þó hún nái aldrei sömu eiginleikum og 100% náttúrulatex (sem kostar líka talsvert meira).
 
Latex er þeim einstöku eiginleikum gætt að það veitir alveg einstaka fjöðrun og dempun, á sama tíma og það veitir ótrúlega jafnan og þéttan stuðning við allan líkamann. Latex hegðar sér mjög svipað og Memory Foam, það er að segja það lagar sig að öllum líkamanum og gefur eftir á mestu álagspunktunum. Ólíkt Memory Foam hinsvegar skilar latex sér strax til baka þegar þú veltir þér á hliðina, og þar af leiðandi er alveg ótrúlega auðvelt að hreyfa sig í latex dýnum.

Latex er líka hráefni sem að heldur alveg einstaklega vel lögun sinni, og eru latex dýnur því með mun lengri líftíma en aðrar dýnur.

Svo skemmir nú ekki fyrir að latex er náttúrulega örveirueyðandi (drepur rykmaura og myglusvepp) að eðlisfari og er ekki ofnæmisvaldandi.

Ertu með latex ofnæmi? Engar áhyggjur. Prótínin í latex sem þú ert með ofnæmi fyrir eru óvirkjuð í framleiðslunni, og því algerlega skaðlaus þegar dýnan skilar sér til þín. Ef þú vilt vera alveg viss þá getum við lánað þér bút af latexi sem þú getur tekið með þér heim til að vera viss um að latex dýnur henti þér.

Kantar

Kantarnir á dýnunni eru sérstaklega styrktir. Það stækkar svefnflötinn og auðveldar fólki að standa upp úr rúminu.

Afhendingartími

Lystadún-Snæland og Vogue heilsudýnur eru framleiddar eftir pöntunum. Afhendingartími er því 7 - 10 virkir dagar.

Framleiðsluland

Allar Lystadún-Snæland og Vogue dýnur, rúmbotnar og höfðagaflar eru handgerð íslensk framleiðsla. Áratuga reynsla og gæði. 

Ábyrgð

Vogue notar einungis hráefni vottuð með Oeko-Tex Standard 100  umhverfisvottuninni við framleiðslu á öllum sínum heilsudýnum, rúmbotnum og höfðagöflum. Það þýðir að neytendur geta gengið að því vissu að Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotnar og höfðagaflar eru úr hráefnum sem eru laus við hættuleg eða skaðleg efni sem voru unnin með lágmörkun á umhverfisáhrifum að leiðarljósi.

Allur svampur sem Vogue notar í Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotna og höfðagafla er fenginn frá stærsta svampframleiðanda í heimi, Carpenter Co. Allur sá svampur er vottaður með Oeko-Tex Standard 100.

Allur latex sem Vogue notar í Lystadún-Snæland Hafdís heilsudýnurnar sínar er fenginn frá stærsta og virtasta latexframleiðanda í Evrópu, Artilat. Latex frá Artilat er allur vottaður með Oeko-Tex Standard 100 og Rainforest Alliance umhverfisvottunum, og er meðlimur í Forest Stewardship Council (FSC-C135311) samtökunum.

Vottanir

Vogue notar einungis hráefni vottuð með Oeko-Tex Standard 100  umhverfisvottuninni við framleiðslu á öllum sínum heilsudýnum, rúmbotnum og höfðagöflum. Það þýðir að neytendur geta gengið að því vissu að Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotnar og höfðagaflar eru úr hráefnum sem eru laus við hættuleg eða skaðleg efni sem voru unnin með lágmörkun á umhverfisáhrifum að leiðarljósi.

Allur svampur sem Vogue notar í Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotna og höfðagafla er fenginn frá stærsta svampframleiðanda í heimi, Carpenter Co. Allur sá svampur er vottaður með Oeko-Tex Standard 100.

Allur latex sem Vogue notar í Lystadún-Snæland Hafdís og Mayan Green heilsudýnurnar sínar er fenginn frá stærsta og virtasta latexframleiðanda í Evrópu, Artilat. Latex frá Artilat er allur vottaður með Oeko-Tex Standard 100 og Rainforest Alliance umhverfisvottunum, og er meðlimur í Forest Stewardship Council (FSC-C135311) samtökunum.

Finnur þú ekki þína stærð?

Við sérsmíðum dýnur í öllum stærðum og gerðum. Sendu okkur línu með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan og ráðgjafi frá okkur mun hjálpa þér að smíða draumadýnuna þína.