
HAFDÍS 20 - Einbreitt Heilsurúm (80 - 140cm)
0kr. – 2.000kr.Price range: 0kr. through 2.000kr.
“Fatboy – Vegglampi, Add the Wally ljósgrár” has been added to your cart. Skoða körfu
Royal Katla – Tvíbreitt Heilsurúm (160 – 180cm)
151.100kr. – 170.300kr.Price range: 151.100kr. through 170.300kr.
Royal Katla býður upp á einstaka mýkt án þess að fórna nauðsynlegum stuðningi sem tryggir þér fullkominn nætursvefn. Katla er millistíf heilsudýna með vönduðu pokagormakerfi, þykku þægindalagi úr þrýstijöfnunarsvampi og vatteruðu dýnuveri og er fullkomin fyrir þá sem vilja orlítið meiri mýkt.
Katla hefur verið afar vinsæl í unglinga og gestaherbergin.
Royal Katla er vönduð millistíf heilsudýna með vönduðu pokagormakerfi sem styður sérstaklega vel við mjóbakið.
Að auki er Katla með þykku þægindalagi úr þrýstijöfnunarsvampi sem léttir álagið á helstu álagssvæðum líkamans eins og mjöðmum og öxlum. Dýnan dreifir líkamsþunganum sérstaklega vel ásamt því að auðvelt er að hreyfa sig í dýnunni.
Stífleiki
Royal Katla er millistíf.
Dýnuver
Dýnuverið utan um Kötlu er saumað úr sterku og teygjanlegu pólýester sem að tryggir góða endingu. Dýnuverið er sömuleiðis vatterað sem að eykur yfirborðsþægindi dýnunar og bætir kælingu. Þar að auki er þykkt lag af þrýstijöfnunarsvampi og bylgjumótuðum svampi inni í dýnuverinu fyrir aukin þægindi.
Stuðningur og þægindi
Katla heilsudýnan er með sérstaklega þykkt þægindalag til þess að hafa yfirborðsmýktina sem allra besta.
- Þægindalagið byrjar í dýnuverinu sem er samsett úr 2cm þykkum þrýstijöfnunarsvampi, og svo 3,8cm mjúkum bylgjumótuðum svampi.
- Næsta lag samanstendur svo af þremur lögum af kaldsvampi, samtals 5,5cm, hvert lag með sinn stífleika.
Katla heilsudýnan er með vönduðu pokagormakerfi. Hver gormur er 22cm á lengd sem gefur dýnunni virkilega góða fjöðrun.
Hver gormur er sérinnpakkaður í nylon poka, sem eru svo límdir saman á þremur punktum. Þetta gerir gormakerfið mun sterkara, og gerir það að verkum að það lagar sig að líkamanum og tryggir að hreyfing milli svefnsvæða verður lítil sem engin.
Kantar
Kantarnir á dýnunni eru sérstaklega styrktir. Það stækkar svefnflötinn og auðveldar fólki að standa upp úr rúminu.
Rúmbotn
Við sérsmíðum okkar eigin rúmbotna sem eru einstaklega sterkir viðarbotnar samsettir úr MDF og furu.
Við bólstrum einnig rúmbotnana og er hægt að velja mismunandi liti og áklæði.
Afhendingartími
Royal Katla heilsudýnan er lagervara og er hægt að fá afgreidda alla virka daga milli 08:00 og 16:00 svo framarlega sem birgðir séu til.
Lystadún-Snæland og Vogue rúmbotnar eru framleiddar eftir pöntunum. Afhendingartími er því 7 - 10 virkir dagar.
Ábyrgð
5 ára framleiðsluábyrgð er á öllum Royal dýnum.
Vottanir
Öll hráefni sem notuð eru við framleiðslu á Royal Esju eru vottuð með Oeko-tex 100 umhverfisvottun og svampurinn er CertiPUR vottaður.
Vogue notar einungis hráefni vottuð með Oeko-Tex Standard 100 umhverfisvottuninni við framleiðslu á öllum sínum heilsudýnum, rúmbotnum og höfðagöflum. Það þýðir að neytendur geta gengið að því vissu að Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotnar og höfðagaflar eru úr hráefnum sem eru laus við hættuleg eða skaðleg efni sem voru unnin með lágmörkun á umhverfisáhrifum að leiðarljósi.
Allur svampur sem Vogue notar í Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotna og höfðagafla er fenginn frá stærsta svampframleiðanda í heimi, Carpenter Co. Allur sá svampur er vottaður með Oeko-Tex Standard 100.