GLÓDÍS 20 – Einbreitt Heilsurúm (80 – 140cm)

122.080kr.209.800kr.

Glódís 20 er heimsklassa heilsudýna úr smiðju Lystadún Snæland og Vogue. Glódís er pokagormadýna með vönduðu fimm svæða gormakerfi og þægindalagi úr hágæða kaldsvampi.

Pokagormadýnur fjaðra og dempa vel, auðvelda hreyfingu á næturna og veita góða öndun.

Glódís 20 er einnig fáanleg sem tvíbreitt rúm sem má skoða hér.

Íslensk hönnun – Íslensk framleiðsla.

Vörutegund

Heilsudýnur

Vörumerki

VNR: glodis-20-heilsurum-1

Hér er á ferðinni fyrsta flokks heilsurúm úr smiðju Lystadún-Snæland og Vogue.

Lystadún-Snæland heilsudýnur hafa verið framleiddar á Íslandi í rúm 70 ár. Við leggjum mikla áherslu á að vinna einungis úr fyrsta flokks hráefni og notum því einungis umhverfisvottaðan svamp í heilsudýnurnar okkar.

Stífleiki

Hægt er að velja um mjúka eða millistífa dýnu.

Einnig er hægt að velja mjúk/stíf og þá gerum við dýnuna þannig að annar helmingur dýnunnar er mjúkur og hinn stífur. Þannig fá báðir aðilar sitt draumarúm ef um par er að ræða !

Dýnuver

Innofa™ dýnuverið er gert úr sterku og teygjanlegu pólýester sem að tryggir góða endingu. Dýnuverið er sömuleiðis vatterað sem að eykur yfirborðsþægindi dýnunar og bætir kælingu.

Innofa™ dýnuverið má þvo á 30°C.

Stuðningur og þægindi

Mýkri útgáfan er samsett úr 15cm af ComfiSpring pokagormakerfi og 5cm af mjúkum umhverfisvottuðum svampi.

​Stífari útgáfan er samsett úr 15cm af ComfiSpring pokagormakerfi og 5cm af stífum umhverfisvottuðum svampi.

ComfiSpring er hágæða pokagormakerfi. Það er 5 svæðaskipt fyrir aukin þægindi, mýkra við axlir og mjaðmir, en veitir stuðning við bak. Gormarnir eru ekki hnýttir saman heldur eins og nafnið gefur til kynna, hver í sínum poka og næst þannig lágmarks hreyfing milli svefnsvæða.

Kantar

Kantarnir á dýnunni eru sérstaklega styrktir. Það stækkar svefnflötinn og auðveldar fólki að standa upp úr rúminu.

Rúmbotn

Við sérsmíðum okkar eigin rúmbotna sem eru einstaklega sterkir viðarbotnar samsettir úr MDF og furu.

Við bólstrum einnig rúmbotnana og er hægt að velja mismunandi liti og áklæði.

Afhendingartími

Lystadún-Snæland og Vogue heilsudýnur og rúmbotnar eru framleiddar eftir pöntunum. Afhendingartími er því 7 - 10 virkir dagar.

Framleiðsluland

Allar Lystadún-Snæland og Vogue dýnur, rúmbotnar og höfðagaflar eru handgerð íslensk framleiðsla. Áratuga reynsla og gæði. 

Ábyrgð

5 ára framleiðsluábyrgð er á öllum Lystadún Snæland heilsudýnum.

Vottanir

Lystadún-Snæland og Vogue notar einungis hráefni vottuð með Oeko-Tex Standard 100  umhverfisvottuninni við framleiðslu á öllum sínum heilsudýnum, rúmbotnum og höfðagöflum. Það þýðir að neytendur geta gengið að því vissu að Lystadún-Snæland og Vogue heilsudýnur, rúmbotnar og höfðagaflar eru úr hráefnum sem eru laus við hættuleg eða skaðleg efni sem voru unnin með lágmörkun á umhverfisáhrifum að leiðarljósi.

Allur svampur notaður í Lystadún-Snæland og Vogue heilsudýnur, rúmbotna og höfðagafla er fenginn frá stærsta svampframleiðanda í heimi, Carpenter Co. Allur sá svampur er vottaður með Oeko-Tex Standard 100 umhverfisvottun.

Finnur þú ekki þína stærð?

Við sérsmíðum dýnur í öllum stærðum og gerðum. Sendu okkur línu með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan og ráðgjafi frá okkur mun hjálpa þér að smíða draumadýnuna þína.

Ekki gleyma rúmgaflinum