HAFDÍS 20 - Heilsudýna 110.240kr.259.200kr.
Aftur í vörulista
Rúmbotn (Campos - 9 litir) 44.160kr.99.800kr.

CORINNA – Heilsudýna

35.040kr.80.960kr.

Heilsudýnan Corinna er ein vinsælasta heilsudýnan okkar frá upphafi.

Corinna er stíf pokagormadýna með vönduðu fimm svæða gormakerfi, þunnu þægindalagi og vatteruðu dýnuveri.

Pokagormadýnur fjaðra og dempa vel, auðvelda hreyfingu á næturna og veita góða öndun.

 

Vörumerki

Vörutegund

Heilsudýnur

VNR: corinna-heilsudyna

Royal Corinna er stíf og góð heilsudýna með fimmsvæðaskiptu pokagormakerfi sem hentar einstaklega vel bæði sem einstaklingsrúm og hjónarúm.

Royal Corinna er ein vinsælasta heilsudýnan okkar frá upphafi og hana má til dæmis finna á mörgum helstu hótelum og gistiheimilum landsins þar sem hún hentar einstaklega vel þar sem álag er mikið.

Stífleiki

Royal Corinna er stíf.

Dýnuver

Dýnuverið utan um Royal Corinna er saumað úr sterku og teygjanlegu pólýester sem að tryggir góða endingu. Dýnuverið er sömuleiðis vatterað sem að eykur yfirborðsþægindi dýnunar og bætir kælingu.

Stuðningur og þægindi

Efsta lagið á Royal Corinna er úr 3,8cm þykkum kaldsvampi fyrir aukna yfirborðsmýkt, og undir því eru 2cm af þéttari kaldsvampi fyrir aukinn stuðning.

Royal Corinna er með stíft fimmsvæðaskipt pokagormakerfi. Gormarnir eru 18 cm á hæð og eru 609 talsins.

Hver gormur er sérinnpakkaður í nylon poka, sem eru svo límdir saman á þremur punktum. Þetta gerir gormakerfið mun sterkara, og gerir það að verkum að það lagar sig að líkamanum og tryggir að hreyfing milli svefnsvæða verður lítil sem engin.

Pokagormakerfið er fimm svæða skipt til að tryggja að líkaminn fái réttan stuðning og til að létta á helstu álagspunktum líkamans (axlir og bak).

Kantar

Kantarnir á dýnunni eru sérstaklega styrktir. Það stækkar svefnflötinn og auðveldar fólki að standa upp úr rúminu.

Afhendingartími

Royal Corinna heilsudýnan er lagervara og er hægt að fá afgreidda alla virka daga milli 08:00 og 16:00 svo framarlega sem birgðir séu til.

Framleiðsluland

Royal Corinna er framleidd í Kína.

Ábyrgð

5 ára framleiðsluábyrgð er á öllum Royal dýnum.