Skilmálar
Varðandi viðskipti í verslunum Vogue ehf
Rekkjan Heilsurúm er vörumerki í eigu Vogue ehf, og gilda því sömu skilmálar um kaup og sölu í verslun Rekkjunnar og gilda í Vogue fyrir heimilið.
YFIRLIT
Til að stunda viðskipti í vefverslun þarf að framkvæma eftirfarandi skref:
-
Velja vöru og setja hana í körfu.
-
Velja “Ganga frá pöntun” og fylla út allar nauðsynlegar upplýsingar um viðskiptavin.
-
Velja viðeigandi sendingar og greiðslumáta.
-
Ganga frá greiðslu.
Þegar greiðsla hefur borist Vogue ehf. fær viðskiptavinur senda kvittun fyrir kaupunum í tölvupósti. Þegar sú kvittun hefur borist hefur rafrænn kaupsamningur verið gerður milli vefverslun Rekkjunnar og viðskiptavins.
Vogue ehf.
411091-2019
Síðumúli 30, 107 Reykjavík
533-3500
vogue@vogue.is
VSK: 31078
Skila og skiptiréttur
Skilaréttur á vörum versluðum í starfstöðvum Vogue ehf
- Viðskiptavinum Vogue ehf er heimilt að skila ógallaðri vöru í 7 (sjö) daga frá afhendingu vörunnar.
- Við skil á ógallaðri vöru innan 7 (sjö) daga frá afhendingu vörunnar er vara endurgreidd á sama máta og greitt var fyrir þær gegn framvísun kassakvittunar.
- Vörur sem merktar eru með gjafamiða gera kassakvittun óþarfa við skil, en þá er endurgreiðsla í formi inneignarnótu.
- Sérsniðnum vörum er ekki hægt að skila, sjá frekari lýsingu í 1.3 og 1.4
Skilaréttur á vörum versluðum í vefverslun Vogue ehf
Um vörur verslaðar í fjarsölu eða utan starfstöðva Vogue ehf, til að mynda í vefverslun, gildir eftirfarandi ákvæði. Viðskiptavinur vefverslunar Vogue ehf hefur 14 (fjórtán) daga frest til að falla frá kaupsamning og þarf ekki að tilgreina neina ástæðu fyrir því.
Til að mega nýta sér þennan rétt þarf viðskiptavinur að tilkynna vefverslun Vogue ehf ákvörðun sína um að falla frá samningi. Hægt er að tilkynna þessa ákvörðun með því að:
Nauðsynlegt er að ofangreind tilkynning berist í skrifuðu formi, þar sem sönnunarbyrði um að vefverslun Vogue ehf hafi borist sú ákvörðun viðskiptavinar að falla frá kaupsamningi hvílir á neytanda.
Takmarkanir og skilyrði
Eftirfarandi takmarkanir eða skilyrði gilda um skil eða skipti á vörum keyptum í verslunum Vogue ehf:
- Einungis er endurgreitt fyrir þær vörur sem er skilað. Sendingarkostnaður er einungis endurgreiddur sé allri pöntuninni skilað.
- Vörur eru endurgreiddar á sama máta og greitt var fyrir þær.
- Ef vörur voru verslaðar með lántöku í gegnum Síminn Pay, Pei, Netgíró eða Aur verður endurgreiðsla í formi niðurfellingu kröfu hjá því félagi sem á við.
- Óheimilt er að falla frá kaupsamning með því að neita móttöku sendingar. Fyrst þarf að tilkynna Vogue ehf skriflega að viðskiptavinur falli frá kaupsamning.
- Óski viðskiptavinur eftir því að skila vöru með endursendingu fellur sá kostnaður á viðskiptavin og ber viðskiptavinur ábyrgð á að varan skili sér til vefverslunar Vogue ehf. Undantekning á þessu er ef að um er að ræða ranga, skemmda eða gallaða vöru.
- Viðskiptavinur er ábyrgur fyrir þeirri rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar af meðferð hennar, annarri en þeirri sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni vörunnar. Að öðru leyti þarf varan að vera í upprunalegum umbúðum, óopnuð, ónotuð og óskemmd.
- Ekki er hægt að skila skorinni metravöru.
- Ekki er hægt að skila gluggatjöldum sem eru sérsniðin eftir málum.
- Ekki er hægt að skila íslenskum framleiðsluvörum, heilsudýnur eru með sér skilmála.
Réttur til að falla frá samningi er ógildur í eftirfarandi tilfellum:
“Afhendingar á innsiglaðri vöru sem er ekki hægt að skila vegna lýðheilsusjónarmiða eða af hreinlætisástæðum hafi innsigli verið rofið eftir afhendingu”. Smellið hér fyrir nánari upplýsingar.
Þetta ákvæði á við um eftirfarandi vörur:
-
- Handklæði, þvottapokar og baðmottur
- Servíettur, viskastykki, borðtuskur og klútar
- Allar hreinlætisvörur eins og t.d. Salernisbursta
- Sængurver og koddaver
- Lök, hlífðarlök og dýnuhlífar
- Sængur og koddar
- Fatnaður, sokkar og baðsloppar
- Dýnur og yfirdýnur sem falla ekki lengur undir 30 daga skila og skipti skilmála Vogue ehf er varða kaup á dýnum og rúmum.
“Afhendingar á vöru sem er framleidd samkvæmt forskrift neytandans eða ber skýrt auðkenni hans”. Smellið hér fyrir nánari upplýsingar.
Þetta ákvæði á við um eftirfarandi vörur:
Allar framleiðsluvörur sem eru sérframleiddar fyrir viðskiptavin utan staðlaðra stærða Vogue ehf. Til dæmis má taka dýnur í hjólhýsi/tjaldvagna, sérskorinn svamp í húsgagnasmíði, sérsmíðaða rúmbotna í óvenjulegum málum og sérsaumaðar/smíðaðar gardínur og gluggatjöld.
Staðlaðar stærðir á rúmbotnum (breidd x lengd) Vogue ehf eru eftirfarandi:
-
- 80x200cm
- 80x210cm
- 90x200cm
- 90x210cm
- 91.5x213cm (Half Cal-King Size)
- 96.5x203cm (Half King-Size)
- 100x200cm
- 120x200cm
- 140x200cm
- 153x203cm (Queen Size)
- 160x200cm
- 180x200cm
- 183x213cm (Cal-King Size)
- 180x210cm
- 193x203cm (King Size)
- 200x200cm
Staðlaðar stærðir á heilsudýnum (breidd x lengd) Vogue ehf eru eftirfarandi:
-
- 80x200cm
- 80x210cm
- 90x200cm
- 90x210cm
- 100x200cm
- 120x200cm
- 140x200cm
- 153x203cm (Queen Size)
- 160x200cm
- 180x200cm
- 183x213cm (Cal-King Size)
- 180x210cm
- 193x203cm (King Size)
- 200x200cm
Staðlaðar stærðir á rúmgöflum (breidd x hæð) Vogue ehf eru eftirfarandi:
-
- 80x122cm
- 80x122cm
- 90x122cm
- 90x122cm
- 100x122cm
- 120x122cm
- 140x122cm
- 153x122cm (Queen Size)
- 160x122cm
- 180x122cm
- 183x122cm (Cal-King Size)
- 180x122cm
- 193x122cm (King Size)
- 200x122cm
- 220x122cm
- 240x122cm
Staðlaðar stærðir á barnadýnum (lengd x breidd x hæð) Vogue ehf eru eftirfarandi:
-
- 45x80x6cm (Ferköntuð vöggudýna)
- 45x80x6cm (Sporöskjulaga vöggudýna)
- 55x115x8cm
- 60x120x8cm
- 70x140x8cm
- 70x170x8cm
- 70x140x12cm (lagskipt 7+5cm)
- 70x170x12cm (lagskipt 7+5cm)
- 80x140x12cm (lagskipt 7+5cm)
- 80x170x12cm (lagskipt 7+5cm)
- 90x140x12cm (lagskipt 7+5cm)
- 90x170x12cm (lagskipt 7+5cm)
Skila- og skiptiréttur á dýnum
Um heilsudýnur keyptar hjá Vogue ehf gilda sérstakar skila- og skiptireglur.
- Þrjátíu daga skipti- og skilaréttur er á dýnum í stöðluðum stærðum með því skilyrði að kaupandi kaupi hlífðarlak eða dýnuhlíf hjá okkur.
- Við skil á dýnu þá er andvirði hennar endurgreitt að frádregnu 15% skilagjaldi.
- Vogue ehf gerir þá kröfu að sé dýnu skilað eða skipt skuli hún vera óskemmd, í upprunalegum pakkningum og kvittun fylgi með.
- Hægt er að skipta dýnu út fyrir aðra innan 30 daga frá afhendingu.
- Sé skilaðri dýnu skipt út fyrir dýrari dýnu greiðir viðskiptavinur mismuninn.
- Sé skilaðri dýnu skipt út fyrir ódýrari dýnu endurgreiðir Vogue ehf kaupanda mismuninn.
- Athugið að flutningur er alltaf á kostnað kaupanda.
- Sérframleiddum dýnum í óstöðluðum stærðum er hvorki hægt að skila né skipta.
Hér er hægt að lesa lög um neytendasamninga í heild sinni.
Hér er hægt að lesa lög um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu í heild sinni.
Ábyrgðarskilmálar
Í flestum tilfellum gildir almenn íslensk neytendaábyrgð á flestum keyptum vörum í verslunum Vogue ehf, en hún er 2 (tvö) ár frá kaupdagsetningu.
Kvittun fyrir kaupunum gildir sem ábyrgðarskírteini vörunnar.
Sumar vörur, eins og til dæmis framleiðsluvörur, eru með lengri ábyrgðartíma. Í þeim tilfellum er slíkt sérstaklega tekið fram.
Vörur sem seldar eru til fyrirtækja eða í atvinnustarfsemi eru með 1 (eins) árs ábyrgðartíma.
Kvartanir vegna vörugalla skulu berast Vogue ehf um leið og gallans verður vart.
Tilkynna má um gallaða vöru með tölvupósti á rekkjan@rekkjan.is, vogue@vogue.is, í síma 588-1955 (Rekkjan), eða í síma 533-3500 (Vogue fyrir heimilið).
Eftirfarandi eru ítarlegir ábyrgðarskilmálar Vogue ehf:
Varan sem þú hefur keypt hjá Vogue ehf nýtur ábyrgðar samkvæmt kaupalögum nr. 50/2000. Þjónustudeildir okkar halda utan um viðhald og ábyrgðarviðgerðir á öllum vörum sem fyrirtækið selur, gerist þess þörf. Ef einhverjar spurningar vakna þá hikaðu ekki við að hafa samband við okkur. Við viljum benda þér á að fylgja uppgefnum leiðbeiningum um rétta notkun og meðferð. Góð meðferð mun tryggja lengri endingu og áreiðanlegri virkni.
Reikningurinn gildir sem ábyrgðarskírteini fyrir upprunalegan kaupanda. Reikningnum verður að framvísa ef varan kemur til ábyrgðar, sem sönnun um ábyrgðartíma og að handhafi sé hinn upprunalegi kaupandi. Glataður reikningur leiðir til glataðrar ábyrgðar. Einnig er ábyrgð glötuð ef áföst ábyrgðarskírteini eða verksmiðju-, rað- og tegundanúmer hafa verið skemmd eða fjarlægt af vörunni. Ábyrgð á vörum hjá okkur er mismunandi og í sumum tilfellum lengri en kaupalög segja til um. En áhersla er lögð á, að ábyrgð gildir ekki ef um eðlilegt slit eða rekstrarvöru er að ræða. Ábyrgðin nær til framleiðslu- og efnisgalla sem fram kunna að koma á vörunni á ábyrgðartímanum.
Það er á ábyrgð og kostnað kaupandans að koma vörunni til skoðunar eða viðgerðar til þjónustudeildar Vogue ehf ef þess gerist þörf. Undantekningar geta verið gerðar á þessu ef um nýja og fyrirferðamikla muni er að ræða. Sé það nauðsynlegt eða þess óskað að viðgerð á ábyrgðartíma fari fram utan þjónustudeildar Vogue ehf, þ.e. að viðgerðarmaður fari á staðinn og geri við eða inni af hendi aðra slíka þjónustu á vörunni, greiðir kaupandi fyrir ferðatíma, ferðakostnað og uppihald samkvæmt gildandi töxtum Vogue ehf.Athygli skal vakin á , að vörur sem sendar eru með 3ja aðila teljast afhentar þegar þær eru afhentar flutningsaðila og eru þá á ábyrgð kaupanda. Það er á ábyrgð kaupanda að tryggja vöru sem send er með 3ja aðila.
Nánar um söluveð:
Seljandi á söluveð í öllum hinum seldu munum til tryggingar samanlögðu kaupverði á framhlið reiknings þessa, ásamt vöxtum og kostnaði samkvæmt lögum 35.gr nr. 75/1997 um samningsveð. Standi kaupandi ekki í skilum með framangreint kostnaðarverð, er seljanda heimilt hvort heldur hann vill, láta selja hið veðsetta nauðungarsölu til fullnustu kröfu sinni eða rifta söluveðsetningunni og krefjast afhendingar hins veðsetta. Söluveð fellur ekki niður af hinum seldu munum fyrr en við fullnaðargreiðslu. Sama á við um vörur sem greiddar eru með raðgreiðslusamningum. Óheimilt er að selja hið veðsetta, breyta því eða skeyta við aðra hluti þannig að hætta sé á að söluveð glatist.
Hér er hægt að lesa lög um lausafjárkaup í heild sinni.
Afhendingarmátar
Vogue ehf býður upp á breytilega afhendingarmáta eftir því hvort eigi að sækja eða senda pantanir. Sömuleiðis geta afhendingarmátar verið mismunandi eftir póstnúmeri.
Vogue kaupir sendingarþjónustu af þriðja aðila og ber ekki ábyrgð á töfum sem koma upp eftir að pöntun hefur verið afhent sendingaraðila.
Afhendingartími getur verið breytilegur eftir því hvaða sendingarmáti er valinn. Á álagstímum getur afhendingartími orðið lengri en almennt má búast við.
Lesa má nánar um þá afhendingarmáta sem vefverslun Rekkjunnar býður uppá með því að smella hér.
Afhendingartími
Almennur afhendingartími
Vogue ehf leggur sig fram við að afgreiða vörur eins hratt og auðið er. Eftirfarandi afhendingartímar eiga við um starfstöðvar Vogue ehf:
- Smávörur verslaðar í starfstöðvum Vogue ehf eru afgreiddar viðskiptavini samdægurs svo framarlega sem þær séu til á lager.
- Húsgögn og aðrar stærri vörur verslaðar í starfstöðvum Vogue ehf eru afgreiddar viðskiptavini samdægurs svo framarlega sem þær séu til á lager. Stærri vörur eru einungis afgreiddar á afgreiðslutíma lagers.
- Afgreiðslutími getur verið breytilegur sé óskað eftir sendingu.
Sjá má afgreiðslutíma hér.
Lesa má nánar um þá afhendingarmáta sem vefverslun Rekkjunnar býður uppá með því að smella hér.
Afhendingartími úr vefverslun
Eftirfarandi afhendingartímar eiga við um vefverslun Vogue ehf:
- Smávörur verslaðar í vefverslun Vogue ehf sem viðskiptavinur óskar eftir að sækja í verslun eru almennt afgreiddar næsta virka dag svo framarlega sem varan sé til á lager.
- Húsgögn og aðrar stærri vörur verslaðar í vefverslun Vogue ehf sem viðskiptavinur óskar eftir að sækja í verslun eru almennt afgreiddar næsta virka dag svo framarlega sem varan sé til á lager. Stærri vörur eru einungis afgreiddar á afgreiðslutíma lagers. Sjá má afgreiðslutíma hér.
- Afgreiðslutími getur verið breytilegur sé óskað eftir sendingu.
Sjá má afgreiðslutíma hér.
Lesa má nánar um þá afhendingarmáta sem vefverslun Rekkjunnar býður uppá með því að smella hér.
Afhendingartími á framleiðsluvörum
Eftirfarandi afhendingartímar eiga við um vörur sérframleiddar af Vogue ehf:
- Framleiðsluvörur á við dýnur, rúm, rúmgafla, svefnsófa, stuðningspúða og dýnuver sem ekki eru til á lager eru að jafnaði afgreiddar 10 – 15 virkum dögum eftir pöntun. Á álagstímum má gera ráð fyrir að afgreiðslutími geti lengst.
Um vöruverð í vefverslun
Vöruverð í vefverslun Vogue ehf er að jafnaði það sama og í verslunum okkar. Vöruúrval, afslættir og tilboð geta hinsvegar verið breytileg milli vefverslunar og verslana.
- Vöruverð í vefverslun er tilgreint með virðisaukaskatti en án sendingarkostnaðar.
- Verð í vefverslun getur breyst án fyrirvara og öll verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur sem og prentvillur.
- Birgðastaða, myndir og vörulýsingar í vefverslun Vogue ehf eru birtar með fyrirvara um villur.
- Í einstaka tilfellum getur vara klárast á milli þess sem pöntun er gerð og þar til hún er tekin saman, eða þá að birgðastaða er röng sem gerir viðskiptavin kleift að versla vöru sem ekki er til.
Í þeim tilfellum mun starfsfólk vefverslunar Vogue ehf hafa samband við viðkomandi viðskiptavin símleiðis eða í tölvupósti og aðstoða hann við val á annarri vöru, eða endurgreiða honum vöruna til fulls.
- Allur sendingarkostnaður er tilgreindur í greiðsluferlinu. Enginn aukakostnaður á að leggjast á vörukaup eftir að greiðsluferlinu er lokið, nema viðskiptavinur óski eftir því að breyta skilyrðum sendingarinnar og að þau breyttu skilyrði feli í sér aukinn kostnað.
Greiðslumátar í vefverslun
Greiðslumátar í vefverslun
Eftirfarandi greiðslumátar eru í boði þegar verslað er í vefverslun Vogue ehf:
- Kredit- og debetkort í gegnum örugga greiðslugátt Valitor. Greiðsla er skuldfærð strax af kortinu.
- Síminn Pay: Greiðsla fer fram í Síminn Pay appinu og samkvæmt þeirra skilmálum. Hægt er að nýta sér raðgreiðslur með Síminn Pay. Nánari upplýsingar og skilmála má nálgast á heimasíðu Síminn Pay.
- Netgíró: Greiðsla fer fram í Netgíró appinu og samkvæmt þeirra skilmálum. Hægt er að nýta sér raðgreiðslur með Netgíró. Nánari upplýsingar og skilmála má nálgast á heimasíðu Netgíró.
- Pei: Greiðsla fer fram í Pei appinu og samkvæmt þeirra skilmálum. Hægt er að nýta sér raðgreiðslur með Pei. Nánari upplýsingar og skilmála má nálgast á heimasíðu Pei.
- AUR: Greiðsla fer fram í AUR appinu og samkvæmt þeirra skilmálum. Nánari upplýsingar og skilmála má nálgast á heimasíðu Aur.
Persónuvernd og vafrakökur
Hér getur þú lesið skilmála okkar varðandi meðferð persónuupplýsinga og vafrakökur
Ágreiningur
Reynt er að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt. Ef það er ekki mögulegt er hægt að bera málið undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu.
Lokaúrræði er að fara með málið fyrir dómstóla og skal það gert í íslenskri lögsögu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.
Ekki hika við að hafa samband
Við svörum öllum fyrirspurnum og spurningum eftir bestu getu eins fljótt og auðið er.
Sendu okkur tölvupóst með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan, eða hafðu samband á Facebook.
HAFA SAMBAND
Facebook