HAFDÍS 20 - Heilsudýna
HAFDÍS 20 - Heilsudýna Price range: 137.800kr. through 324.000kr.
Aftur í vörulista
Rúmbotn (Campos - 9 litir)
Rúmbotn (Campos - 9 litir) Price range: 60.900kr. through 114.800kr.

Royal Katla – Heilsudýna

Price range: 79.800kr. through 168.300kr.

Royal Katla býður upp á einstaka mýkt án þess að fórna nauðsynlegum stuðningi sem tryggir þér fullkominn nætursvefn. Katla er millistíf heilsudýna með vönduðu pokagormakerfi, þykku þægindalagi úr þrýstijöfnunarsvampi og vatteruðu dýnuveri og er fullkomin fyrir þá sem vilja orlítið meiri mýkt.

Katla hefur verið afar vinsæl í unglinga og gestaherbergin.

Vörumerki

Vörutegund

Heilsudýnur

VNR: katla-heilsudyna

Royal Katla er vönduð millistíf heilsudýna með vönduðu pokagormakerfi sem styður sérstaklega vel við mjóbakið.

Að auki er Katla með þykku þægindalagi úr þrýstijöfnunarsvampi sem léttir álagið á helstu álagssvæðum líkamans eins og mjöðmum og öxlum. Dýnan dreifir líkamsþunganum sérstaklega vel ásamt því að auðvelt er að hreyfa sig í dýnunni.

Stífleiki

Royal Katla er millistíf.

Dýnuver

Dýnuverið utan um Katla er saumað úr sterku og teygjanlegu pólýester sem að tryggir góða endingu. Dýnuverið er sömuleiðis vatterað sem að eykur yfirborðsþægindi dýnunar og bætir kælingu. Þar að auki er þykkt lag af þrýstijöfnunarsvampi og bylgjumótuðum svampi inni í dýnuverinu fyrir aukin þægindi.

Stuðningur og þægindi

Katla heilsudýnan er með sérstaklega þykkt þægindalag til þess að hafa yfirborðsmýktina sem allra besta.

  • Þægindalagið byrjar í dýnuverinu sem er samsett úr 2cm þykkum þrýstijöfnunarsvampi, og svo 3,8cm mjúkum bylgjumótuðum svampi.
  • Næsta lag samanstendur svo af þremur lögum af kaldsvampi, samtals 5,5cm, hvert lag með sinn stífleika.

Katla heilsudýnan er með vönduðu pokagormakerfi. Hver gormur er 22cm á lengd sem gefur dýnunni virkilega góða fjöðrun.

  • Hver gormur er sérinnpakkaður í nylon poka, sem eru svo límdir saman á þremur punktum. Þetta gerir gormakerfið mun sterkara, og gerir það að verkum að það lagar sig að líkamanum og tryggir að hreyfing milli svefnsvæða verður lítil sem engin.

Kantar

Kantarnir á dýnunni eru sérstaklega styrktir. Það stækkar svefnflötinn og auðveldar fólki að standa upp úr rúminu.

Afhendingartími

Royal Katla heilsudýnan er lagervara og er hægt að fá afgreidda alla virka daga milli 08:00 og 16:00 svo framarlega sem birgðir séu til.

Ábyrgð

5 ára framleiðsluábyrgð er á öllum Royal dýnum.

Vottanir

Öll hráefni sem notuð eru við framleiðslu á Royal Kötlu eru vottuð með Oeko-tex 100 umhverfisvottun og svampurinn er CertiPUR vottaður