Luxury Crosby Plush - Heilsudýna 167.840kr.239.040kr.
Aftur í vörulista
Luxury Harlan Ptop- Heilsudýna 235.840kr.311.840kr.

Luxury Harlan CFM – Heilsudýna

215.040kr.287.840kr.

Harlan Cushion Firm er afar glæsileg heilsudýna úr Luxury línunni frá King Koil. Harlan Cushion Firm er eins og nafnið gefur til stíf pokagormadýna sem skartar fimm svæða gormakerfi og þægindalagi sem veitir einstakan stuðning án þess að fórna þægindum.

Amerískar pokagormadýnur hafa ávallt verið fremstar í flokki. Þær fjaðra og dempa vel, auðvelda hreyfingu á næturna og veita afbragðs öndun.

Harlan CFM er stífari útgáfan af Harlan Ptop sem má skoða hér.

King Koil – Made in USA since 1898

Vörumerki

VNR: luxury-harlan-cfm-heilsudyna

Luxury Harlan Cushion Firm er fyrsta flokks stíf heilsudýna með fimmsvæðaskiptu pokagormakerfi sem veitir fullkominn stuðning á réttum stöðum til að mynda undir mjóbaki og öxlum.

Reinforced Edge Perimeter pokagormakerfið í Luxury línunni er einnig með sérstaklega styrkta kanta sem stækkar svefnflötinn og tryggir að auðvelt sé að rísa úr rekkju.

Dýnuverið sjálft er sérstök hönnun King Koil, en það er úr örverueyðandi Safeguard áklæði og inniheldur AdvantaGel™ gelblandaðan svamp sem eykur kælingu og stuðlar að bættri öndun dýnunnar.

Stífleiki

Luxury Harlan Cushion Firm heilsudýnan er stíf.

Dýnuver

Dýnuverið utan um Luxury Ellman Firm heilsudýnuna er tvíþætt:

  • Dýnuverið sjálft er úr Safeguard áklæði, en það er spunnið úr örverueyðandi trefjum sem koma í veg fyrir að rykmaurar og aðrar örverur fái að njóta sín í draumadýnunni þinni.
  • Á milli laga í dýnuverinu er síðan AdvantaGel™, háþróaður gelblandaður svampur, sem hjálpar til við að hitastýra svefnfletinum og auka öndun dýnunnar.
Þægindalag
  • 2,5cm High Density Plush svampur

High Density Plush svampurinn er þéttur og mjög mjúkur kaldsvampur sem lagar sig vel að og heldur við lögun líkamans. 

  • 1cm iFusion™ Technology svampur

iFusion™ svampurinn er sérstakur gelblandaður þrýstijöfnunarsvampur sem er í þessu tilfelli notaður til að veita aukin stuðning og auka þægindi fyrir axlir á bak.

  • 2,5cm Extra Firm High Density svampur

Extra Firm High Density svampurinn er þéttur og mjög stífur kaldsvampur sem veitir afburðar góðan stuðning við allan líkamann.

Þessi samsetning hentar yfirleitt mjög vel þeim sem kjósa að sofa á bakinu. Hefur einnig verið mjög vinsæll stífleiki hjá fólki í yfirþyngd eða þeim sem eiga við bakvandamál að stríða.

Stuðningur
  • 20cm Reinforced Edge Perimeter pokagormakerfi

Reinforced Edge Perimeter pokagormakerfið er fimmsvæðaskipt sem þýðir að það veitir góðan stuðning undir mjóbakið en gefur eftir undir axlasvæðinu.

Pokagormakerfi eru hönnuð til þess að minnka hreyfingu milli svefnsvæða, aðlaga sig að líkamanum og fækka álagspunktum, en ásamt þessu er Reinforced Edge Perimeter gormakerfið einnig með sérstaklega styrktum kanti sem stækkar svefnflötinn og auðveldar þér að standa upp úr dýnunni.

Afhendingartími

Luxury Harlan CFM er lagervara og er hægt að fá afgreidda alla virka daga milli 08:00 og 16:00 svo framarlega sem birgðir séu til.

Framleiðsluland

Luxury Harlan Cushion Firm er framleidd af King Koil, en þau hafa framleitt dýnur á sama stað í Connecticut fylki í Bandaríkjunum síðan 1898.

Ábyrgð

10 ára hlutfallsleg framleiðsluábyrgð er á öllum King Koil dýnum.

Ekki gleyma rúmgaflinum