Rekkjan Heilsurúm
Um Okkur
Rekkjan Heilsurúm var stofnað árið 1992 og allar götur síðan höfum við verið með einkaumboð hér á landi fyrir bandaríska rúmframleiðandann King Koil, sem jafnframt er einn stærsti rúmframleiðandi á austurströnd Ameríku. King Koil rúmin hafa verið framleidd í Connecticut í Bandaríkjunum allt frá árinu 1898. King Koil er jafnframt eina fyrirtækið sem framleiðir dýnur með vottun frá bæði FCER sem er Alþjóða rannsóknarsamband Kírópraktora og Good Housekeeping, en það eru stærstu neytendasamtökin í Bandaríkjunum.
Góður nætursvefn er frumskilyrði þess að fólki líði vel á daginn og geti sinnt nauðsynlegum verkefnum. Síðustu tvo áratugi hefur starfsfólk Rekkjunnar selt hágæða heilsurúm frá King Koil og býr því yfir gríðarlegri þekkingu sem skilar sér til viðskiptavina í leit þeirra að draumarúminu. Rekkjan Heilsurúm sérsmíðar alla rúmbotna og höfðagafla sjálf en sú þjónusta gerir viðskiptavinum okkar kleift að geta valið um ótal mismunandi áklæði og liti.
Fyrir rúmum 10 árum hóf Rekkjan Heilsurúm sölu á hinum sívinsælu Ergomotion rafmagnsrúmum. Ergomotion, sem einnig er bandarískt fyrirtæki (eins og King Koil), hefur verið leiðandi í hönnun og þróun stillanlegra heilsurúma síðan 2005. Gæði, ending, hámarks slökun og vellíðan eru þar í fararbroddi. Rekkjan Heilsurúm er afar stolt af því að bjóða uppá Ergomotion rafmagnsrúmin.
Umræða um mikilvægi þess að ná góðum svefn er ávallt að aukast og viljum við tryggja að Íslendingar hafi aðgang að hágæða heilsurúmum (með rafmagni eða ekki) sem veita góðan stuðning og stuðla að góðum nætursvefni en góður nætursvefn er forsenda vellíðunar. Að auki höfum við alltaf verið með mikið og gott úrval af sængum, heilsukoddum, hlífðarlökum, rúmfötum og fleira.
Rekkjan Heilsurúm er einnig með einkaumboð hér á landi fyrir grjónapúðana og lífstílsvörurnar sívinsælu frá FATBOY. Vörurnar frá þeim eru margvíslegar og skemmtilegar en þekktastir eru örugglega The Original grjónapúðarnir sem slá sífellt í gegn hvar sem þá má finna.
Í dag er Rekkjan Heilsurúm í eigu Vogue fyrir heimilið. Allar vörur sem við sérsmíðum eru smíðaðar í Vogue fyrir heimilið í Síðumúla 30.