Rúmbotn Basic
42.000kr. – 74.900kr.Price range: 42.000kr. through 74.900kr.
Vandaður rúmbotn úr smiðju Lystadún Snæland og Vogue fyrir heimilið.
Botninn er smíðaður úr furu og MDF með lausu áklæði.
Íslensk hönnun – Íslensk framleiðsla.
Efniviður
Hafa skal ávallt í huga hvort að rúmbotninn komist inn fyrir hússins dyr og inní herbergi í heilu lagi þar sem rúmbotninn kemur fullsamsettur og bólstraður. Í sumum tilfellum er betra að taka tvo minni botna og skeyta þeim saman (t.d. tvo 90×200 botna í stað 180×200).
Rúmbotnarnir eru samsettir úr MDF og furu.
Þessi rúmbotn er bólstraður með Amber tau áklæði.
Afhendingartími
Lystadún-Snæland rúmbotnar eru framleiddar eftir pöntunum. Biðtími eftir pöntunum er um 7-10 virkir dagar að jafnaði.
Framleiðsluland
Allir Lystadún-Snæland rúmbotnar eru framleiddir af Vogue fyrir Heimilið í Síðumúla 30, Reykjavík
Ábyrgð
5 ára framleiðsluábyrgð er á öllum Lystadún-Snæland rúmbotnum.
Vottanir
Vogue notar einungis hráefni vottuð með Oeko-Tex Standard 100 umhverfisvottuninni við framleiðslu á öllum sínum heilsudýnum, rúmbotnum og rúmgöflum. Það þýðir að neytendur geta gengið að því vissu að Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotnar og rúmgaflar eru úr hráefnum sem eru laus við hættuleg eða skaðleg efni sem voru unnin með lágmörkun á umhverfisáhrifum að leiðarljósi.
Allur svampur sem Vogue notar í Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotna og rúmgafla er fenginn frá stærsta svampframleiðanda í heimi, Carpenter Co. Allur sá svampur er vottaður með Oeko-Tex Standard 100.
