Rúmbotn (Amber - 11 litir) 48.720kr.91.840kr.
Aftur í vörulista
SUPERSOFT - Yfirdýna 44.700kr.127.700kr.

CELCIUS – Yfirdýna

91.000kr.127.700kr.

Góð yfirdýna getur gert gott rúm ennþá betra.
Íslensk hönnun – Íslensk framleiðsla

Vörumerki

Vörutegund

Yfirdýnur

VNR: lystadun-yfirdyna-celcius

Hágæða Lystadún-Snæland yfirdýna úr smiðju Vogue fyrir heimilið. 

Yfirdýnan er búin til úr 5cm þykkum fyrsta flokks þrýstijöfnunarsvampi (e. memory foam) sem heitir Celcius® ​sem er þeim eiginleikum gæddur að mýkjast upp þegar hann hitnar. Það gerir það að verkum að hann lagar sig alveg einstaklega vel að líkamanum og veitir mjög þéttan og góðan stuðning við alla álagspunkta. Celcius®​ er líka töluvert léttari en margir aðrir þrýstijöfnunarsvampar og andar því sérstaklega vel og skilar sér hratt til baka þegar þrýstingi er létt af honum.
Dýnur og yfirdýnur úr þrýstijöfnunarsvampi hafa verið afar vinsælar hjá þeim sem eru aumir í mjóbaki og öxlum vegna þess hve vel hann dreyfir líkamsþunga og minnkar þrýsting á mjaðmir, bak og axlir.

​Afhverju yfirdýnu?

  • Yfirdýnur eru yfirleitt notaðar til þess að breyta yfirborðsmýkt rúms. Algengast er að fólk noti yfirdýnur til þess að lífga upp á gömul rúm sem farin eru að slitna eða sjá á. Hinsvegar getur góð yfirdýna einnig gert góða dýnu enn betri, til dæmis ef þú hefur fundið hina fullkomnlega stífu dýnu sem veitir þér akkúrat þann stuðning sem þú vilt, en þér finnst bara vanta ögn uppá yfirborðsmýktina. Þá getur yfirdýna verið það sem fullkomnar dýnuna, bara rétt smá mýking á topplagið.
​Þykkt
  • Yfirdýnan er 5cm þykk.
Dýnuver
  • Allar yfirdýnurnar okkar koma klæddar í Innofa Frotte dýnuver. Innofa Frotte dýnuverið er gert úr sterku og teygjanlegu pólýester sem að tryggir góða endingu.
  • Innofa Frotte dýnuverið er með rennilás. Það þýðir að hægt er að klæða dýnurnar úr og þvo dýnuverið sem er auðvitað algjört lykilatriði í góðri umhirðu dýnunnar þinnar.
  • Innofa Frotte dýnuverið má þvo á 40°C.
Afhendingartími
  • Lystadún-Snæland yfirdýnur eru framleiddar eftir pöntunum. Biðtími eftir pöntunum er því 3-4 vikur að jafnaði.

Framleiðsluland

  • Allar Lystadún-Snæland dýnur eru framleiddar af Vogue fyrir Heimilið í Síðumúla 30.

Ábyrgð

  • 5 ára framleiðsluábyrgð er á öllum Lystadún-Snæland dýnum.
Sérlausnir
  • Finnurðu ekki stærðina þína hér fyrir ofan? Við getum framleitt yfirdýnur í nánast hvaða stærð sem er . Sendu okkur línu á vogue@vogue.is og við græjum yfirdýnu í þinni stærð!

Vottanir

  • Vogue notar einungis hráefni vottuð með Oeko-Tex Standard 100  umhverfisvottuninni við framleiðslu á öllum sínum heilsudýnum, rúmbotnum og höfðagöflum. Það þýðir að neytendur geta gengið að því vissu að Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotnar og höfðagaflar eru úr hráefnum sem eru laus við hættuleg eða skaðleg efni sem voru unnin með lágmörkun á umhverfisáhrifum að leiðarljósi.
  • Allur svampur sem Vogue notar í Lystadún-Snæland heilsudýnur, rúmbotna og höfðagafla er fenginn frá stærsta svampframleiðanda í heimi, Carpenter Co. Allur sá svampur er vottaður með Oeko-Tex Standard 100.